Stutt stopp
Ég er semsagt komin heim aftur eftir tveggja vikna dvöl í L.A. ekki dugði það lengi. En það er bara svona stundum. Hildur var eitthvað óviss með þetta allt saman og til þess að festast ekki í einhverju rugli lét ég færa mig strax til NYC, enda ætti það að henta mér mikið betur. Eins og allir vita eru Ameríkanar verulega sérstakt fólk. Ég fór út með visa sem kallast M1 og er einvherskonar Vacational Visa, það er visa áritunin sem ég þarf til að fara í skólann í L.A. aftur á móti, til þess að geta stundað nám við nákvæmlega sama skóla, bara í öðru fylki, þá þarf ég að fá visa áritun sem heitir F1 og er Academical Visa. Skil ekki alveg hvers vegna þetta er svona, en eins og ég sagði þá eru þessi kanar sooooldið spes. Ég get ekki breytt M1 visa í F1 visa en ég get breytt F1 visa í M1 visa. Þannig að til þess að geta látið færa mig til NYC, þurfti ég að koma heim og fara í gegnum allt heila visa processið aftur. Ég vildi ekki missa 3 vikur úr náminu þannig að mér var bara ráðlagt að byrja þá ekki fyrr en í september. Sem þýðir bara það, að ég verð á Íslandi í ca. 2 mánuði. Ekki sá ég fyrir mér að þetta myndi gerast. En ég er bara mjög sátt við þetta og hlakka mikið til að fara til NYC og koma mér fyrir þar. Ætla að leigja mér sæta studio íbúð og fá mér hund, já ég ætla að fá mér lítinn sætan yorkie. Nei ég segi bara svona, það væri samt gott, þá yrði ég aldrei einmana.
Svo fór ég að hugsa að eftir að ég var búin að ganga frá þessum breytingum, að nú er mikið einfaldara fyrir fólk að koma og heimsækja mig....bara eitt flug beint til NYC. Gargandi snilld. Nú hefur hún Erna mín enga afsökun...hahahah...hí á þig....
En þrátt fyrir heimkomuna þá ætla ég samt að halda áfram að blogga og setja inn myndir og svona, þannig að ekki hætta að fylgjast með.
Knús
Andrea

1 Comments:
haha nei ég hef enga afsökun:) ég svitnaði við tilhugsunina að þurfa að millilenda og fara í annað flug til að komast í heimsókn til þín ..úff en það er allt breytt núna hehe núna kem ég pottþett.. :):) knús
Post a Comment
<< Home