Holy Moly
Jæja...þá er ég loksins komin til L.A. eftir ansi langt ferðalag. Það gekk samt allt rosalega vel og Hildur kom og sótti mig á flugvöllinn. Við gistum á Móteli í Westur Hollywood, þar sem Hollywood Blvd. og Sunset Blvd. eru....en þurftum að signa okkur út þaðan í dag...þannig að við erum heimilislausar eins og er. Við fáum samt að gista hjá Lindsey þar til við finnum eitthvað. Við vorum búnar að skoða æðislega íbúð sem við erum að vonast til að fá.....karlinn ætlar að hringja í okkur á morgun og láta okkur vita...þannig að að allir að krossa fingur fyrir okkur. Húsið er líka svo sætt...það er litið og bleikt en íbúðin er risastór og á efri hæðinni.
Við erum með bílaleigubíl núna í 8 daga, þannig að við erum ekki alveg í ruglinu...hahhaha....en þetta er æðislega spennandi. Svo er svo heitt hérna....ég er sko að deyja...án gríns....og það er ekki eins og maður sé mikið klæddur....en ég ætla ekki að hafa þetta lengra.....ég ætla að setja inn myndir fljótlega...ekki að ég sé búin að taka margar...hehe...en bæti úr því...lofa.
Sakna ykkar allra heima....ýkt mikið og vona að sem flestir komi og heimsækji mig.....ÞESSI BORG ER ÆÐI!!!!
love ya - missa ya - can't wait to see ya
Andrea

1 Comments:
Baby baby... I'll be there on the 21st. You'll be the first I'll visit. Cinnamon bread, margaritas and Cheese Cake Factory here I come... CAN'T WAIT...
luv u most....
xxx
StellaRz
Post a Comment
<< Home