Fyrsti skóladagurinn
Það er svo fyndið hvað maður er alltaf hálf kjánalegur fyrsta daginn í nýjum skóla. Maður þekkir engann og veit ekki hvar maður á að vera, hvað þá hvernig maður á að vera. Dagurinn gekk samt vel fyrir sig og skemmti ég mér rosalega vel. Fyrsti tíminn var semsagt Accent Reduction, kannarinn er Claire Corff, hún er sko algjör skvísa, sérstaklega miðað við það að hún er fimmtug. Hún er mjög hress og ég fýlaði hana alveg í botn. Við vorum 8 i tímanum, sem er fín tala, ekki of margir. Seinni tíminn var Introduction to Acting með Tom Badal, eitur hress kall..með huge bumbu. Maðurinn er bara orkubolti, alveg rosalega hress og skemmtilegur. Hann talaði nánast straight í 4 klukkutíma...en það var líka bara allt í lagi..hehe...við gerðum nokkrar æfingar, bara þetta venjulega byrjunardót. Hlakka mikið til að byrja á Method æfingum, pínu smeik...en það er nú bara þannig. Þýðir ekkert annað en að stinga sér í djúpa endann með hausinn fyrst. Erum nýlega komnar heim og vorum að klára að borða afgang af pasta sem ég fékk á California Pizza Kitchen í gær....hehehe....það er sko verið að spara.
Ég setti svo inn nokkrar myndir....lofa að vera dugleg að henda inn myndum vikulega.
Ykkar,
Andrea
Ég setti svo inn nokkrar myndir....lofa að vera dugleg að henda inn myndum vikulega.
Ykkar,
Andrea


0 Comments:
Post a Comment
<< Home