U-turn
Ok málin standa svona....ég ætla að flytja til New York...U-beygja dauðans!! hehe...mér er fúlasta alvara..skólinn er líka í New York, þannig að ég ætla bara að pakka saman og fara þangað. Þannig er ég líka nær Íslandi...og ég sem sagði að ég myndi sko ekki sakna þess...BULLSHIT!!....hahha...en þetta verður stuð..er að fara að hringja í skólann og athuga hvort ég get ekki örugglega látið færa mig. Það ætti ekki að vera neitt mál. Svo er líka styttra fyrir mig að koma heim, mamma var voða ánægð með það, sagðist núna geta sent eftir mér í viku eða eitthvað...jibbí!! Ég veit ég er búin að segja að ég eigi bestu foreldra í heimi....en ég ætla að segja það aftur...ÉG Á BESTU FORELDRA Í HEIMI!!....Ef allt fer eftir planinu mínu, þá ætti ég að vera í New York á sunnudaginn eða mánudaginn....svo er líka styttra og ódýrara fyrir pæjurnar mínar að heimsækja mig...jeij!! Ég læt svo vita hvernig þetta fer...
knús
Andrea
knús
Andrea


0 Comments:
Post a Comment
<< Home