Wednesday, November 15, 2006

Seint blogga sumir en blogga þó!!!

Það er kannski best ad afsaka lélega blogg frammistöðu. Málið er að tölvan mín er ónothæf. Ég fékk nefninlega vírus í hana fyrir ca 5 vikum síðan og hún gjörsamlega hrundi greyid. Ég er semsagt búin að tapa öllu sem var á henni, t.d. myndum, tónlist og bara öllum file-um sem voru á henni....FREKAR FÚLT!!!
En ekkert við því ad gera. Hún situr því hérna greyið litla í töskunni sinni og bíður eftir því að komast heim í viðgerð.

Það gengur annars bara allt voðalega vel hérna úti, ég er alveg að fýla skólann í tætlur sem er algjör snilld!!
Ég er búin ad eignast soldið af vinum allstaðar að úr heiminum og svo líka íslenskum.

Ég get nú sagt ykkur frá einu fimmtudagskvöldi sem ég upplifði ekki fyrir allt of löngu. Ég fór og hitti hana Margréti Eir í smá dinner, fórum á voða krúttlegan Kúbverskan stað og náði mín að drekka þrjá Mohito kokkteila...híhí...var svona nett tipsy. Eftir það fórum við á tónleika á stað sem heitir The cutting room og er í eigu Mr. Big úr Sex and The City. Þar var nefninlega maður að spila sem lék Aiden í Sex and The City. Ég skemmti mér bara nokkuð vel, nema það að ég vildi að ég hefði ekki rekist á þessa tvo leikara. Þeir voru nú alveg glataðir...ég bara verð að segja það sko!!
Eftir ad hann var búinn ad spila....hann Aiden þá kom hann nidur af svidinu og ég bara stóð þarna voða saklaus þegar hann labbar framhjá mér og brosir, ég brosi til baka og segi "pretty good concert" (klárlega að ljúga) anyways...hann segir "thank you" og ég átti bara vona á því að maðurinn myndi labba í burtu....en neeeiiiii...hann stóð þarna áfram og sagði allt í einu, algjörlega óspurður, og ég er ekki að ljúga þessu "Now is my personal time, I need my personal space...you need to understand that" ég stóð þarna í smástund og bara starði á hann, vissi náttúrulega ekkert hvaðan þetta kom, enda var ég ekkert að þvælast utan í honum né á leiðinni að elta hann eitt né neitt. Svo sagði ég "Oh wow, you are such an actor aren´t you" svo sprakk ég úr hlátri og gekk í burtu og hann stóð alveg eins og kúkalabbi einn eftir...haha...ég viðurkenni alveg að ég var pínu í því en mér fannst ég ýkt cool, ég fór svo að hugsa hvort hann hafi móðgast afþví sagði að tónleikarnir hans hefdu verid ágætir? Kannski er hann vanur því að stelpur hoppi á hann og kyssi hann og segi að hann sé besti tónlistarmaður í heiminum.
Allavega þetta er nú ekki alveg búið, ég átti eftir að hitta Mr. Big, sem var því miður ekkert skemmtilegri lífsreynsla. Inná staðnum var Jukebox og fyrir framan hann stóð par og annar maður, ég sá ekki framan í þetta fólk enda stóð ég fyrir aftan þau og var að skoða, ásamt þeim, hvaða lög væru í boði í þessum kassa. Eftir nokkara mínútur snýr annar maðurinn sér við, ekki sá sem var með konunni, heldur hinn. Þá sé ég að það var enginn annar en Mr. Big, svo ég svona brosi smá til hans. Þá segir hann við mig "What are you staring at?, you´re looking at me like I just killed your mother" og þá svaradi ég bara "I´m not even looking at you, I´m looking at the Jukebox" Svo hugsaði ég alveg "Vó...hvaðan kom þetta" og afhverju eru þessar "stjörnur" svona góðar með sig, ég meina það er ekki eins og ég hafi verið að elta þá eða stara á þá...ég var bara þarna, minding my own damn business. Hann labbaði allavega svo bara í burtu og ég ákvað að það væri kominn tími fyrir mig að fara heim. Ég bara þorði ekki að taka sénsinn á að hitta Carrie og Samönthu þarna líka og láta þær kannski hella yfir mig drykk að ástæðulausu...nei ég segi bara svona. En þetta var svona frekar spes kvöld.

Thanksgiving fer svo að ganga í garð hérna í Ameríkunni, og er mér boðið til hennar Fjólu minnar í mat, hún býr nú reyndar í Jacksonville í Florida, en það getur verid að maður fái ódýrt flug og skelli sér. Kemur í ljós.
Svo er ég eflaust á leið til Illinois 30.nóv að heimsækja Gamla, en það er ekki alveg komið á hreint...vona það nú samt!
Svo fer að styttast í heimförina, kem 22.des....rétt næ í jólin...híhí.

Ég skal svo vera mun duglegri að blogga eftir áramót, því þá verður tölvan mín komin í lag og engar afsakanir. En ég verð að taka nýjar myndir af borginni til að setja inn, þar sem allar mínar eru gone!! (ég veit að þú hlærð að þessu mamma....þær eru bara gone....a la Hanna Lára Köhler)

Hlakka til að sjá ykkur
Knús
Andrea

Tuesday, October 03, 2006

IKEA ferð dauðans

Góðan dag
góðan dag
glens og grín það er mitt fag
hopp og hí trallalí
uppá nef mitt nú ég sný
ef þú afi gamli kannski fyndir
einar tíu teiknimyndir
viltu setja
viltu setja
viltu setja þær tækið í.

Anyways, fór í IKEA síðasta sunnudag og ég sver það, ég fer aldrei aftur í þessa verslun um helgi. Þetta var algjör martröð. Ég keypti mér hillur og gardínur og svona smá stuff sem mig vantaði, herðatré og svoleiðis dót. Það tók mig heilar 7 klst að fara í IKEA og til baka. Fyrst fór ég með lestinni heiman frá mér á Port Authority Bus Terminal og tók þaðan rútu allaleið i IKEA sem er í New Jersey....pirrandi!! Búðin var nottla troðin af fólki, það var ekki hægt að komast fram né til baka. Ég náði nú samt að kaupa það sem mig vantaði og drulla mér út, gerði mér ekki grein fyrir því að ég var þar inni í 4klst....sem begur fer segi ég nú bara. Svo var það rútan aftur á bus stoppið og taxi heim. Þið hefðuð átt að sjá mig burðast með 3 hillur, 3 gardínustangir og 3 troðfulla poka....núna er ég líka að drepast úr vöðvabólgu.
Þegar ég kom heim þá var ég í þvílíkum ham, alveg tilbúin að setja upp hillur og gardínur og svona.....but nooooo....það voru engar skrúfur! Helvítis IKEA seldi mér hluti með engum skrúfum!!!
Anyways...ég finn mér bara skrúfubúð og kaupi fullt af skrúfum, svo að ég þurfi aldrei að hafa áhyggjur af skrúfum ever again!! lol
Annars er herbergið mitt ótrúlega cosy....soldið tómlegt, en það kemur allt þegar ég er búin að fá sófann...þá verður það voða krúttlegt.

Ég er búin að setja inn nokkrar myndir, ekkert frá New York samt. Myndir frá Vegamótum, síðasta kvöldið og nokkrar myndir af Íslandi og Reykjavík.

Fer svo að setja inn myndir af New York.....lofa ;)

Knús
Andrea

Thursday, September 28, 2006

Viltu vera memm?

Fór í skólann í dag til að fá stundaskránni minni breytt. Hún var nefninlega ekki eins og ég bað um, og þið vitið hvernig það er....það sem Andrea vill...fær hún...múhahaha...djók.
Allavega, ég er með frekar netta stundatöflu núna, ekkert mál að koma og heimsækja mig!!!

Stundaskráin er semsagt eftirfarandi:

Mánudagar
13:30-17:30 - Acting for film & tv
18:00-20:00 - Speaking Voice for the Actor

Þriðjudagar
09:00-13:00 - Method Acting
13:30-17:30 - 12 Films

Miðvikudagar
09:00-11:00 - Tai Chi I
11:00-13:00 - Singing II
13:30-17:30 - Method Acting

Ég er í fríi á fimmtudögum og föstudögum :) þannig að það er ýkt gaman að heimsækja mig frá t.d. miðvikudegi til sunnudags :):):):)....GAMAN SAMAN!!!

Knús
Andrea

Wednesday, September 27, 2006

Komin til NYC

Búin að vera hér í New York í 2 vikur núna og er að fíla staðinn í botn!!
Fyrsta vikan var frekar erfið, það gekk ekkert að finna húsnæði og gaurinn sem ég fékk að gista hjá var algjör sóði. Ég var öll í bitum eftir að hafa sofið í sófanum hans í 5 nætur. Sem betur fer fékk ég að gista hjá Önnu, frænku hennar Gúddýar, og Hjálmari manninum hennar.
Anna Karin dóttir þeirra fann svo fyrir mig húsnæði í Queens sem ég flyt inní næstu helgi...jibbí!!!
Herbergið mitt er sko HUGE, það er meira að segja arinn í herberginu mínu...gotta love it!!
Nú er bara að kaupa húsgögn og flytja inn...jibbí!! verð eflaust flutt alveg inn á sunnudaginn.

Byrjaði í skólanum í fyrradag...það er mjög gaman, fékk reyndar kolvitlausa stundartöflu, er að fara að laga það allt í fyrramálið ;)

Svo er bara að taka á móti gestum og svona....fæ gest í october...jibbí...get ekki beðið!!!

Knús
Andrea
(ps. skrifa meira næst...lofa)

Monday, September 11, 2006

New York...

Þá er víst komið að því. Vá hvað tíminn leið fljótt í þetta sinn, enda búin að hafa það ótrúlega gott og gaman í sumar. Ég á flug út til New York á morgun 12.sept. kl 17:00. Búin að pakka öllu. Er með tvær stórar töskur og eina litla sem ég tek með um borð. Ég hringdi í Icelandair í dag, til að athuga með leyfilegan handfarangu, þar sem búið er að herða allar reglur. Mér fundust eftirfarandi hlutir frekar fyndnir.

-ávaxtasafa
-ilmgjafa í fljótandi formi
-snyrtivörur í fljótandi formi

Ég semsagt tók make-ið mitt úr snyrtitöskunni í handfarangurs töskunni og setti í stóru ferðatöskuna. Tek nú ekki sénsinn á að einhver taki af mér Nars make-ið mitt, haha.

Mamma eldaði humar í matinn í kvöld, svo gott!! Alltaf verið að halda kveðjumat fyrir mig. Svo ætla ég að hitta stelpurnar á kaffihús núna á eftir. Segja bæ....aftur!

Læt svo vita af mér þegar ég er komin út og búin að finna íbúð og svona.

Knús
Andrea

Tuesday, July 18, 2006

Home Sweet Home

Þá er maður búinn að vera heima í tvær vikur. Og strax farin að plana ferðina út. Eins og ég sagði þá er ég að fara til NYC, í sama skóla. Ég ætla að leigja mér sæta studio eða 1br íbúð í Brooklyn. Það er ódýrara þar en á Manhattan. Skólinn byrjar 18.september og ég vonast til að vera komin út 8.september. Ætla að vera búin að finna íbúð og kaupa húsgögn og svona áður en skólinn byrjar.
Ég er byrjuð að vinna. Fékk vinnu í Joe Boxer, verð messt á Skólavörðustíg og einstaka sinnum í Smáralind og í Kringlunni. Þannig að ef þið erum á leiðinni framhjá þá kíkið inn og ath hvort þið sjáið mig.
Elva mín kemur svo heim 2.sept þannig að ég næ sem betur fer að sjá hana og Daron Karl áður en ég fer. Ég sakna þeirra svo mikið. Ekki langt í að þau komi heim...jeij!!!!

Annars er ég bara búin að hafa það voða gott síðan ég kom heim, búin að fara á ættarmót og alles....tjútta smá líka...hehe.
Minni á að það eru allir velkomnir til mín í NYC, verð ein þannig að það er frí gisting hjá mér...woohooo...allir að koma til NYC!!! stuð stuð stuð...hehe...

Knús
Andrea

Wednesday, July 05, 2006

Stutt stopp

Ég er semsagt komin heim aftur eftir tveggja vikna dvöl í L.A. ekki dugði það lengi. En það er bara svona stundum. Hildur var eitthvað óviss með þetta allt saman og til þess að festast ekki í einhverju rugli lét ég færa mig strax til NYC, enda ætti það að henta mér mikið betur. Eins og allir vita eru Ameríkanar verulega sérstakt fólk. Ég fór út með visa sem kallast M1 og er einvherskonar Vacational Visa, það er visa áritunin sem ég þarf til að fara í skólann í L.A. aftur á móti, til þess að geta stundað nám við nákvæmlega sama skóla, bara í öðru fylki, þá þarf ég að fá visa áritun sem heitir F1 og er Academical Visa. Skil ekki alveg hvers vegna þetta er svona, en eins og ég sagði þá eru þessi kanar sooooldið spes. Ég get ekki breytt M1 visa í F1 visa en ég get breytt F1 visa í M1 visa. Þannig að til þess að geta látið færa mig til NYC, þurfti ég að koma heim og fara í gegnum allt heila visa processið aftur. Ég vildi ekki missa 3 vikur úr náminu þannig að mér var bara ráðlagt að byrja þá ekki fyrr en í september. Sem þýðir bara það, að ég verð á Íslandi í ca. 2 mánuði. Ekki sá ég fyrir mér að þetta myndi gerast. En ég er bara mjög sátt við þetta og hlakka mikið til að fara til NYC og koma mér fyrir þar. Ætla að leigja mér sæta studio íbúð og fá mér hund, já ég ætla að fá mér lítinn sætan yorkie. Nei ég segi bara svona, það væri samt gott, þá yrði ég aldrei einmana.
Svo fór ég að hugsa að eftir að ég var búin að ganga frá þessum breytingum, að nú er mikið einfaldara fyrir fólk að koma og heimsækja mig....bara eitt flug beint til NYC. Gargandi snilld. Nú hefur hún Erna mín enga afsökun...hahahah...hí á þig....

En þrátt fyrir heimkomuna þá ætla ég samt að halda áfram að blogga og setja inn myndir og svona, þannig að ekki hætta að fylgjast með.

Knús
Andrea

Friday, June 30, 2006

STUPID STUPID TRAFFIC

Dagurinn í gær var útplanaður. Við vorum búnar að ákveða að fara til Mexico og labba um Tijuana. En svo datt það því miður upp fyrir, þar sem ég var vinsamlegast beðin um að fara ekki þangað karlmannslaus. Ég viðurkenni það alveg að ég var soldið fúl en Hildur fann strax lausn á því vandamáli og stakk uppá því að við færum til San Diego í dýragarðinn....svo við brunuðum af stað þangað um 13:30. Ég hef aldrei vitað aðra eins umferð á ævi minni. Það var allt stíflað...all five fucking lanes!! Ferðin sem átti að taka 2 klukkutíma tók því 5 klukkutíma og misstum við af dýragarðinum....við gengum aðeins meðfram ströndinni, fórum á olive garden til að borða fake ass italina food...og keyrðum til baka.....Talandi um tilgangslausa ferð!!!
Við ætlum að fara niður í Orange County...(the O.C.) í dag...skoða okkur um og svona, það ætti að vera gaman...en annars er lífið í L.A. bara fínt...

nenni ekki að blogga meira...
hehe...
Andrea

Wednesday, June 28, 2006

Gubb!!


Ég var semsagt að keyra niður Santa Monica Blvd. þegar ég tók eftir þessum bíl....ég tók snarlega u-beygju bara til að keyra aftur framhjá og smella af honum mynd....HVAÐ ER AÐ??? Það er, eins og Hildur sagði, eins og Louis Vuitton hafi ælt yfir bílinn...langaði bara að deila því með ykkur hvað L.A. er fucked up borg....á sinn yndislega hátt.

Kiss
Andrea

Tuesday, June 27, 2006

U-turn

Ok málin standa svona....ég ætla að flytja til New York...U-beygja dauðans!! hehe...mér er fúlasta alvara..skólinn er líka í New York, þannig að ég ætla bara að pakka saman og fara þangað. Þannig er ég líka nær Íslandi...og ég sem sagði að ég myndi sko ekki sakna þess...BULLSHIT!!....hahha...en þetta verður stuð..er að fara að hringja í skólann og athuga hvort ég get ekki örugglega látið færa mig. Það ætti ekki að vera neitt mál. Svo er líka styttra fyrir mig að koma heim, mamma var voða ánægð með það, sagðist núna geta sent eftir mér í viku eða eitthvað...jibbí!! Ég veit ég er búin að segja að ég eigi bestu foreldra í heimi....en ég ætla að segja það aftur...ÉG Á BESTU FORELDRA Í HEIMI!!....Ef allt fer eftir planinu mínu, þá ætti ég að vera í New York á sunnudaginn eða mánudaginn....svo er líka styttra og ódýrara fyrir pæjurnar mínar að heimsækja mig...jeij!! Ég læt svo vita hvernig þetta fer...

knús
Andrea