Home Sweet Home
Þá er maður búinn að vera heima í tvær vikur. Og strax farin að plana ferðina út. Eins og ég sagði þá er ég að fara til NYC, í sama skóla. Ég ætla að leigja mér sæta studio eða 1br íbúð í Brooklyn. Það er ódýrara þar en á Manhattan. Skólinn byrjar 18.september og ég vonast til að vera komin út 8.september. Ætla að vera búin að finna íbúð og kaupa húsgögn og svona áður en skólinn byrjar.
Ég er byrjuð að vinna. Fékk vinnu í Joe Boxer, verð messt á Skólavörðustíg og einstaka sinnum í Smáralind og í Kringlunni. Þannig að ef þið erum á leiðinni framhjá þá kíkið inn og ath hvort þið sjáið mig.
Elva mín kemur svo heim 2.sept þannig að ég næ sem betur fer að sjá hana og Daron Karl áður en ég fer. Ég sakna þeirra svo mikið. Ekki langt í að þau komi heim...jeij!!!!
Annars er ég bara búin að hafa það voða gott síðan ég kom heim, búin að fara á ættarmót og alles....tjútta smá líka...hehe.
Minni á að það eru allir velkomnir til mín í NYC, verð ein þannig að það er frí gisting hjá mér...woohooo...allir að koma til NYC!!! stuð stuð stuð...hehe...
Knús
Andrea